Nutreleat appið
NTRLT ehf., kt. 530226-0930 (hér eftir „NTRLT“, „við“, eða „okkar“) rekur og býður upp á smáforritið „Nutreleat“ (hér eftir „appið“ eða „þjónustan“), sem er aðgengilegt í gegnum Apple App Store og Google Play Store. Í gegnum þjónustuna er notanda (hér eftir „notandi“, „áskrifandi“ eða „þú“) boðið upp á áskrift að efni og eiginleikum appsins gegn greiðslu, sbr. nánar í 2. og 4. kafla.
Með því að stofna reikning, sækja appið og/eða gerast áskrifandi að tiltekinni áskriftarleið, eða með öðrum hætti fá aðgang að og/eða nota efni eða eiginleika þjónustunnar, hefur þú gert bindandi samning við okkur og samþykkt að fara eftir notendaskilmálum þessum (hér eftir „skilmálarnir“). Jafnframt viðurkennir þú og samþykkir að við vinnum persónuupplýsingar um þig í samræmi við persónuverndarstefnu okkar, sbr. lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Áskriftir að þjónustunni eru að svo stöddu eingöngu keyptar og greiddar í gegnum Apple App Store (Apple In-App Purchase) eða Google Play Store (Google Play Billing), eftir því hvort stýrikerfi tækis þíns er iOS eða Android. Kaup, endurnýjun, tímasetning gjaldtöku, greiðsluupplýsingar og endurgreiðslur eru þar með í höndum Apple Inc. og/eða Google LLC og lúta viðbótarskilmálum þeirra (Apple Media Services Terms and Conditions og/eða Google Play skilmálum), sem gilda til hliðar við skilmála þessa. Komi til ósamræmis á milli skilmála þessara og skilmála Apple eða Google um framkvæmd sjálfrar greiðslunnar, ganga skilmálar Apple/Google framar að því er þann þátt varðar.
Samþykkir þú ekki skilmálana er þér óheimilt að nota þjónustuna eða fá aðgang að efni hennar. Við áskiljum okkur rétt til að segja upp samningnum eða loka aðgangi þínum að þjónustunni, tímabundið eða varanlega, uppfyllir þú ekki ákvæði skilmála þessara.
1.1Þjónustan er eingöngu ætluð einstaklingum sem hafa náð 18 ára aldri og eru hæfir til að gangast undir lagalega bindandi samninga, sbr. lögræðislög nr. 71/1997. Einstaklingum yngri en 18 ára er með öllu óheimilt að stofna reikning, sækja um áskrift eða nota þjónustuna á nokkurn hátt, óháð samþykki eða eftirliti forsjáraðila.
1.2Óheimilt er að nýta þjónustuna án þess að hafa lesið, skilið og samþykkt skilmála þessa.
1.3Skilyrði þess að þú njótir réttinda samkvæmt samningi þessum er að þú hafir gefið réttar upplýsingar um þig við skráningu.
2.1Í boði eru eftirfarandi áskriftarleiðir að þjónustunni:
a)Mánaðarleg áskrift, sem endurnýjast sjálfkrafa mánaðarlega þar til henni er sagt upp, sbr. 5. kafla.
b)Árleg áskrift, sem endurnýjast sjálfkrafa árlega þar til henni er sagt upp, sbr. 5. kafla.
2.2Verð hverrar áskriftarleiðar birtist í appinu og í viðkomandi verslun (App Store/Play Store) áður en kaup eru staðfest. Sama áskrift getur kostað mismunandi eftir gjaldmiðli og markaðssvæði í samræmi við verðlagningu Apple/Google.
2.3Efni og eiginleikar sem eru innifaldir í hverri áskriftarleið kunna að taka breytingum frá einum tíma til annars, sbr. nánar í 10. kafla.
2.4Notanda er með öllu óheimilt að dreifa efni þjónustunnar til þriðja aðila og er jafnframt óheimilt að deila innskráningu eða aðgangi sínum að áskrift með öðrum, sbr. nánar 8. kafla.
3.1Nýjum notendum kann að standa til boða 14 daga ókeypis reynslutími („reynslutíminn“) þar sem fullur aðgangur er veittur að eiginleikum þjónustunnar. Engin skráning greiðsluupplýsinga eða greiðslumáta er áskilin til að hefja reynslutímann og engin gjaldtaka á sér stað í tengslum við hann.
3.2Að reynslutíma loknum lokast sjálfkrafa fyrir aðgang að eiginleikum þjónustunnar sem falla undir áskrift. Þar sem engin greiðsluupplýsing hefur verið skráð á sér engin sjálfvirk gjaldtaka stað við lok reynslutímans.
3.3Kjósi notandi að halda áfram að nýta sér þjónustuna að reynslutíma loknum þarf hann sjálfur, að eigin frumkvæði, að velja áskriftarleið og ljúka kaupum í gegnum kaupferli Apple App Store eða Google Play, sbr. nánar 4. og 6. kafla.
3.4Hverjum notanda/reikningi stendur reynslutíminn einungis til boða einu sinni, nema annað sé sérstaklega tekið fram.
4.1Allar greiðslur fyrir þjónustuna fara fram í gegnum Apple App Store eða Google Play Store, eftir því hvaðan appið er sótt, og lúta greiðsluskilmálum og -háttum viðkomandi verslunar. Við tökum ekki sjálf við greiðslukortaupplýsingum og höfum ekki milligöngu um sjálfa greiðslufærsluna.
4.2Áskrift endurnýjast sjálfkrafa við lok hvers tímabils (mánaðarlega eða árlega, eftir því sem við á) á sama verði, nema notanda hafi sagt henni upp áður en yfirstandandi tímabili lýkur, sbr. 5. kafla, eða verð hafi breyst skv. 4.4.
4.3Gjald fyrir hvert endurnýjunartímabil er tekið af skráðum greiðslumáta notanda hjá Apple/Google skömmu áður en yfirstandandi tímabil rennur út, í samræmi við verklag viðkomandi verslunar.
4.4Ákveðum við að breyta verði áskriftarleiðar munum við, eftir því sem kostur er og reglur Apple/Google krefjast, tilkynna um það með hæfilegum fyrirvara áður en breytingin tekur gildi fyrir yfirstandandi áskrifendur. Sætti notandi sig ekki við verðbreytingu er honum heimilt að segja áskriftinni upp áður en hún tekur gildi, sbr. 5. kafla.
5.1Notanda er heimilt að segja áskrift sinni upp hvenær sem er. Í appinu er í boði valmöguleiki sem vísar notanda beint áfram í áskriftarstillingar hans hjá Apple (Settings → [nafn] → Subscriptions) eða Google Play (Play Store app → Payments & subscriptions), þar sem sjálf uppsögnin er staðfest og afgreidd. Sjálf skráning og framkvæmd uppsagnar fer ávallt fram hjá Apple/Google, þar sem einungis þau hafa tæknilega getu og heimild til að stöðva endurnýjun áskriftar sem keypt var í gegnum verslanir þeirra.
5.1.1Eigi notandi í erfiðleikum með að segja upp áskrift getur hann haft samband við okkur á legal@ntrlt.is og fengið aðstoð og leiðbeiningar, þótt sjálf uppsögnin fari eftir sem áður fram hjá Apple eða Google.
5.2Uppsögn kemur í veg fyrir að áskrift endurnýjist við lok yfirstandandi tímabils en hefur ekki áhrif á þegar greitt tímabil. Segi notandi áskrift upp heldur hann aðgangi að þjónustunni út það tímabil sem þegar hefur verið greitt fyrir, en ekkert gjald er endurgreitt fyrir þann hluta tímabilsins sem er ónýttur, sbr. nánar 6. kafla.
5.3Við áskiljum okkur rétt til að segja notanda upp þjónustunni eða takmarka aðgang hans, með eða án fyrirvara, brjóti hann gegn skilmálum þessum, misnoti þjónustuna eða stofni til svika í tengslum við greiðslur.
6.1Þar sem greiðslur fara eingöngu fram í gegnum Apple App Store eða Google Play Store, eru það Apple Inc. og Google LLC sem taka við, meðhöndla og afgreiða beiðnir um endurgreiðslu, í samræmi við eigin skilmála og verklag. Óski notandi eftir endurgreiðslu skal hann beina slíkri beiðni beint til Apple (t.d. á reportaproblem.apple.com) eða til Google Play, eftir því sem við á. Við tökum ekki við greiðslum og getum því ekki sjálf framkvæmt endurgreiðslu.
6.2Að því marki sem NTRLT hefur ákvörðunarvald um málið (t.d. þegar Apple/Google leita afstöðu okkar vegna endurgreiðslubeiðni), er það stefna okkar að endurgreiða hvorki að hluta né í heild þegar greitt eða endurnýjað áskriftartímabil, óháð því hvort og að hve miklu leyti notandi hefur nýtt sér efni þjónustunnar á tímabilinu, nema um sé að ræða bilun sem rekja má til okkar sem kom í veg fyrir eðlilega notkun þjónustunnar, eða lög kveði á um annað.
6.3Öllum nýjum notendum stendur til boða 14 daga ókeypis reynslutími, sbr. 3. kafla, án þess að greiðsluupplýsingar séu skráðar eða nokkur skuldbinding stofnist. Notandi hefur þar með raunhæft og kostnaðarlaust tækifæri til að kynna sér þjónustuna að fullu áður en til nokkurrar greiðsluskyldu kemur.
6.4Kjósi notandi að gerast áskrifandi, hvort sem er að reynslutíma loknum eða síðar, er honum áður en kaup eru staðfest sýnd sérstök staðfestingarsíða í appinu þar sem fram kemur skýrt og á áberandi hátt að (i) veiting þjónustunnar/efnisins hefjist strax að kaupum loknum, (ii) notandi óski sérstaklega eftir að afhending hefjist áður en 14 daga frestur til að falla frá samningi rennur út, og (iii) með þessu falli réttur hans til að falla frá samningnum niður, sbr. m-lið 18. gr. laga um neytendasamninga nr. 16/2016, sem kveður á um að réttur til að falla frá samningi taki ekki til afhendingar á stafrænu efni sem ekki er afhent á áþreifanlegum miðli hafi afhending hafist með ótvíræðu fyrirframsamþykki neytanda og viðurkenningu hans á að hann muni þar með missa réttinn. Auk staðfestingar í appinu er notanda samhliða sendur tölvupóstur sem staðfestir framangreint samþykki, sbr. kröfu 15. gr. sömu laga um að óskar um að þjónusta hefjist á meðan frestur til að falla frá samningi varir skuli liggja fyrir á varanlegum miðli. Með því að staðfesta þennan skilning og halda áfram í kaupferli Apple/Google veitir notandi upplýst samþykki sitt fyrir framangreindu. Þetta hefur þó ekki áhrif á lögbundinn rétt notanda til að segja áskrift upp til framtíðar, sbr. 5. kafla.
6.5Kjósi notandi að andmæla gjaldfærslu beint við kortaútgefanda sinn eða fjármálastofnun (chargeback) í stað þess að fylgja verklagi Apple/Google skv. 6.1, án þess að slíkt eigi rétt á sér samkvæmt skilmálum þessum, áskiljum við okkur rétt til að stöðva eða loka fyrir aðgang notanda að þjónustunni tafarlaust og án frekari fyrirvara.
7.1Þjónustan er höfundarréttarvarin eign okkar sbr. höfundalög nr. 73/1972 og hefur að geyma höfundarréttarvarða eign leyfisveitenda okkar eða leyfishafa. Öll vörumerki, þjónustumerki, viðskiptaheiti, hönnun og önnur hugverkaréttindi sem felast í þjónustunni eða efni sem stendur til boða í gegnum hana eru eign okkar, leyfisveitenda okkar, leyfishafa eða tengdra fyrirtækja.
7.2Nema við samþykkjum það sérstaklega skriflega má ekki nota eða nýta neinn þátt þjónustunnar eða efnis hennar á annan hátt en sem hluta af þjónustunni sem þér er veitt samkvæmt skilmálum þessum. Við framseljum hvorki eignarrétt né eignarhald á neinum hluta þjónustunnar eða efnis hennar til þín.
8.1Við veitum þér hér með takmarkað, afturkallanlegt leyfi, sem felur ekki í sér einkarétt og er ekki framseljanlegt, til að fá aðgang að og nota appið og efni þjónustunnar til eigin persónulegra nota, en ekki í atvinnuskyni.
8.2Þú staðfestir og samþykkir að þú munir ekki afrita, endurgera, breyta, skapa afleidd verk, birta, dreifa, selja, leigja, lána, framselja eða á annan hátt nýta efni og/eða þjónustuna í heild eða að hluta til þriðja aðila, án skýrs skriflegs fyrirfram leyfis okkar, nema slíkt sé sérstaklega heimilað á grundvelli ófrávíkjanlegra laga.
8.3Hver áskrift er ætluð til nota fyrir einn notanda. Deiling innskráningarupplýsinga eða aðgangs milli einstaklinga er óheimil og getur leitt til lokunar á reikningi án endurgreiðslu.
9.1Þú berð ábyrgð á að halda utan um og vernda aðgangsupplýsingar að reikningi þínum, bæði hjá okkur og hjá Apple/Google, og að koma í veg fyrir óviðkomandi aðgang að honum.
9.2Notandi hefur engan rétt til að framselja réttindi sín og skyldur samkvæmt skilmálunum nema með skriflegri heimild okkar.
10.1Við áskiljum okkur rétt til að breyta, bæta við eða fjarlægja efni, eiginleika eða áskriftarleiðir þjónustunnar hverju sinni. Við berum ekki ábyrgð á mögulegu tjóni sem notandi kann að verða fyrir vegna slíkra breytinga, umfram það sem leiðir af ófrávíkjanlegum lögum.
10.2Við áskiljum okkur rétt til að breyta skilmálum þessum. Verði um verulegar breytingar að ræða sem áhrif hafa á réttindi þín, svo sem verðbreytingar eða aukna ábyrgðartakmörkun, munum við tilkynna um það með tilkynningu í appinu og að lágmarki 14 daga fyrirvara áður en breytingin tekur gildi, og upplýsa um heimild þína til að segja áskrift upp áður en breytingin tekur gildi ef þú sætir þig ekki við hana, sbr. 5. kafla. Óverulegar breytingar má tilkynna með skemmri fyrirvara eða án hans. Áframhaldandi notkun þjónustunnar eftir að breytingar taka gildi telst samþykki þeirra.
Nutreleat er ekki lækningatæki og veitir ekki læknisfræðilega ráðgjöf. Næringarupplýsingar, útreikningar, ráðleggingar og annað efni sem birtist í appinu er eingöngu til almennrar upplýsingar og persónulegrar skráningar.
11.1Appið kemur ekki í stað faglegrar læknisráðgjafar, sjúkdómsgreiningar eða meðferðar. Leitaðu ávallt til hæfs læknis, næringarfræðings eða annars viðurkennds heilbrigðisstarfsmanns áður en þú gerir verulegar breytingar á mataræði, hreyfingu eða næringaráætlun.
11.2Næringarupplýsingar í gagnagrunni appsins eru fengnar frá gagnagrunnum þriðja aðila og framlögum notenda. Við ábyrgjumst ekki að þær upplýsingar séu tæmandi, réttar eða uppfærðar á hverjum tíma.
11.3Áætlanir um orkuþörf og næringarráðleggingar sem appið reiknar út byggja á almennum vísindalegum líkönum og meðaltölum, ekki einstaklingsbundnu mati. Niðurstöður geta verið mismunandi eftir einstaklingum.
11.4Appinu er ekki ætlað að greina, meðhöndla, lækna eða fyrirbyggja neinn sjúkdóm eða heilsufarslegt ástand.
11.5Ef þú ert með undirliggjandi sjúkdóm, ert þunguð eða með barn á brjósti, skaltu ráðfæra þig við hæfan heilbrigðisstarfsmann áður en þú notar appið til að stýra næringu þinni.
11.6Ef þú ert í meðferð vegna átröskunar — þ.m.t. lystarstols, lotugræðgi, ofáts eða annarrar átröskunar — skaltu ráðfæra þig við meðferðaraðila þinn eða næringarfræðing áður en appið er notað. Kaloríuskráning og næringareftirlit getur verið óæskilegt á ákveðnum stigum bata frá átröskun. Við ráðleggjum eindregið gegn notkun appsins án faglegrar leiðsagnar í slíkum tilvikum.
11.7Við höfnum sérstaklega allri ábyrgð á heilsufarslegum afleiðingum, meiðslum eða tjóni sem leiðir af því að reiða sig á upplýsingar sem appið veitir. Notkun appsins er á eigin ábyrgð notanda.
12.1Þjónustan er veitt „eins og hún er“ (as is) og eftir því sem hún er tiltæk á hverjum tíma (as available). Við ábyrgjumst ekki að hún verði samfelld, villulaus eða uppfylli sérstakar væntingar notanda.
12.2Að því marki sem lög leyfa berum við ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, rekstrartapi eða öðru afleiddu tjóni sem leiðir af notkun eða vanhæfni til að nota þjónustuna. Ekkert í skilmálum þessum takmarkar ábyrgð okkar sem ekki verður takmörkuð eða undanskilin samkvæmt ófrávíkjanlegum lögum, þ.m.t. lögum um neytendavernd.
13.1Skilmálar þessir heyra undir og skulu túlkaðir á grundvelli íslenskra laga.
13.2Komi upp ágreiningur skulu aðilar fyrst leitast við að leysa hann með samkomulagi. Ágreiningi sem ekki næst samkomulag um má einnig beina til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa, sem starfar á grundvelli laga um úrskurðaraðila á sviði neytendamála nr. 81/2019 og fjallar um ágreining milli neytenda og seljenda vegna kaupa á vöru eða þjónustu. Að öðrum kosti skal leysa úr ágreiningi fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
14.1Við áskiljum okkur rétt til að framselja réttindi okkar og skyldur samkvæmt skilmálum þessum, í heild eða að hluta, t.d. í tengslum við sölu, samruna eða endurskipulagningu fyrirtækisins, enda hafi slíkt framsal ekki í för með sér skerðingu á réttindum notanda samkvæmt skilmálunum.
14.2Ákveðum við að hætta rekstri appsins eða tiltekinnar áskriftarleiðar munum við tilkynna virkum áskrifendum um það með hæfilegum fyrirvara, eftir því sem framkvæmanlegt er. Áskrifendur halda aðgangi út þegar greitt tímabil en ekkert frekara gjald er innheimt eftir að þjónustan er lögð niður.
15.1Hvorugur aðili ber ábyrgð á vanefndum eða töfum á efndum skilmála þessara sem rekja má til atvika sem hann fær ekki með sanngirni ráðið við og voru ekki fyrirsjáanleg við samningsgerð, þ.m.t. en ekki takmarkað við: bilanir eða rekstrarstöðvun hjá Apple, Google, netþjónustuveitum eða öðrum þriðju aðilum sem þjónustan reiðir sig á; náttúruhamfarir; farsóttir; verkföll eða vinnudeilur; stríðsástand eða hernaðarátök; almennar samgönguhindranir; orkuskort; og aðgerðir eða inngrip stjórnvalda, þ.m.t. viðskiptahömlur.
15.2Leiði slík atvik til þess að aðili geti ekki efnt skyldur sínar samkvæmt skilmálum þessum, ber hann ekki ábyrgð á því svo lengi sem atvikið stendur yfir, og hvorugur aðili á rétt til skaðabóta af þeim sökum.
16.1Reynist eitthvert ákvæði skilmála þessara ógilt eða óframkvæmanlegt að lögum skal það ekki hafa áhrif á gildi annarra ákvæða þeirra, og skal ógilda eða óframkvæmanlega ákvæðinu breytt eins lítið og unnt er svo það nái sem næst upprunalegum tilgangi sínum innan marka laga.
16.2Skilmálar þessir, ásamt persónuverndarstefnu okkar og eftir atvikum viðbótarskilmálum sem vísað er til, mynda heildarsamning milli þín og okkar um efni þeirra og koma í stað allra fyrri eða samhliða samninga, yfirlýsinga eða skilnings aðila um sama efni.
16.3Það að við beitum ekki tilteknu ákvæði skilmálanna í eitt skipti telst ekki fela í sér afsal á rétti okkar til að beita því síðar.
17.1Tilkynningar frá okkur til þín vegna skilmála þessara, þ.m.t. um breytingar á þeim eða á þjónustunni, teljast réttilega birtar með tilkynningu í appinu, tölvupósti á skráð netfang þitt hjá okkur eða Apple/Google, eða eftir atvikum með birtingu á vefsíðu okkar.
17.2Fyrirspurnum, ábendingum og öðrum tilkynningum frá þér til okkar, aðrar en beiðnir um endurgreiðslu skv. 6. kafla, má beina á legal@ntrlt.is.
18.1Skilmálar þessir eru gerðir bæði á íslensku og ensku, sbr. ensku útgáfuna sem er aðgengileg á ntrlt.is/eula?lang=en. Útgáfurnar tvær eru efnislega samhljóða. Komi þó til ósamræmis milli útgáfnanna, af hvaða toga sem er, skal íslenska útgáfan ganga framar og ráða túlkun skilmálanna.
Hafir þú spurningar um skilmála þessa eða viljir hafa samband varðandi réttindi þín, náðu í okkur:
Skilmála þessa ber að lesa samhliða persónuverndarstefnu okkar, sem lýsir því hvernig við söfnum og meðhöndlum persónuupplýsingar þínar.
Nutreleat App
NTRLT ehf., reg. no. 530226-0930 (“NTRLT”, “we”, or “us”) operates and provides the mobile application “Nutreleat” (the “App” or “Service”), available through the Apple App Store and Google Play Store. Through the Service, users (“user”, “subscriber”, or “you”) are offered a subscription to the App's content and features for payment, as described further in Sections 2 and 4.
By creating an account, downloading the App, and/or subscribing to a subscription plan, or otherwise accessing or using the content or features of the Service, you have entered into a binding agreement with us and agreed to comply with these Terms of Use (the “Terms”). You further acknowledge and agree that we process your personal data in accordance with our Privacy Policy, cf. Act No. 90/2018 on Data Protection and the Processing of Personal Data.
Subscriptions to the Service are currently purchased and paid for exclusively through the Apple App Store (Apple In-App Purchase) or Google Play Store (Google Play Billing), depending on whether your device runs iOS or Android. Purchases, renewals, billing timing, payment information, and refunds are therefore handled by Apple Inc. and/or Google LLC and are subject to their respective additional terms (the Apple Media Services Terms and Conditions and/or Google Play Terms of Service), which apply alongside these Terms. In the event of any inconsistency between these Terms and Apple's or Google's terms regarding the execution of payment itself, Apple's/Google's terms shall prevail on that point.
If you do not agree to these Terms, you may not use the Service or access its content. We reserve the right to terminate this agreement or suspend your access to the Service, temporarily or permanently, if you fail to comply with these Terms.
1.1The Service is intended solely for individuals who are at least 18 years of age and legally capable of entering into binding contracts, cf. the Legal Competence Act No. 71/1997. Individuals under the age of 18 are strictly prohibited from creating an account, subscribing, or using the Service in any way, regardless of the consent or supervision of a parent or legal guardian.
1.2You may not use the Service without having read, understood, and accepted these Terms.
1.3It is a condition of your rights under this agreement that you have provided accurate information about yourself upon registration.
2.1The following subscription plans are available for the Service:
a)A monthly subscription, which automatically renews on a monthly basis until cancelled, see Section 5.
b)An annual subscription, which automatically renews on an annual basis until cancelled, see Section 5.
2.2The price of each subscription plan is displayed in the App and in the relevant store (App Store/Play Store) before purchase is confirmed. The same subscription may be priced differently depending on currency and market region, in accordance with Apple's/Google's pricing practices.
2.3The content and features included in each subscription plan may change from time to time, see further Section 10.
2.4You are strictly prohibited from distributing the Service's content to third parties, and likewise prohibited from sharing your login credentials or subscription access with others, see further Section 8.
3.1New users may be offered a 14-day free trial (the “Trial”) during which full access is granted to the Service's features. No payment information or payment method is required to begin the Trial, and no charge occurs in connection with it.
3.2At the end of the Trial, access to the Service's subscription features is automatically suspended. As no payment information has been registered, no automatic charge occurs at the end of the Trial.
3.3Should you wish to continue using the Service after the Trial ends, you must, on your own initiative, select a subscription plan and complete the purchase through the purchase flow of the Apple App Store or Google Play, see further Sections 4 and 6.
3.4The Trial is available to each user/account only once, unless otherwise specifically stated.
4.1All payments for the Service are made exclusively through the Apple App Store or Google Play Store, depending on where the App was downloaded from, and are subject to the payment terms and practices of the relevant store. We do not ourselves receive payment card information and have no role in the payment transaction itself.
4.2The subscription automatically renews at the end of each period (monthly or annually, as applicable) at the same price, unless you have cancelled it before the current period ends, see Section 5, or the price has changed pursuant to 4.4.
4.3The fee for each renewal period is charged to your registered payment method with Apple/Google shortly before the current period ends, in accordance with the relevant store's practices.
4.4Should we decide to change the price of a subscription plan, we will, to the extent feasible and as required by Apple's/Google's rules, provide reasonable notice before the change takes effect for existing subscribers. If you do not accept a price change, you may cancel your subscription before it takes effect, see Section 5.
5.1You may cancel your subscription at any time. The App provides an option that directs you to your subscription settings with Apple (Settings → [name] → Subscriptions) or Google Play (Play Store app → Payments & subscriptions), where the cancellation itself is confirmed and processed. Cancellation is always registered and carried out by Apple/Google, as only they have the technical ability and authority to stop renewal of a subscription purchased through their respective stores.
5.1.1If you have difficulty cancelling your subscription, you may contact us at legal@ntrlt.is for assistance and guidance, although the cancellation itself will still be carried out by Apple or Google.
5.2Cancellation prevents the subscription from renewing at the end of the current period but does not affect a period already paid for. If you cancel, you retain access to the Service for the remainder of the period already paid for, but no amount is refunded for any unused portion of that period, see further Section 6.
5.3We reserve the right to terminate or restrict your access to the Service, with or without notice, if you breach these Terms, misuse the Service, or engage in fraud in connection with payments.
6.1As payments are made exclusively through the Apple App Store or Google Play Store, it is Apple Inc. and Google LLC that receive, handle, and process refund requests, in accordance with their own terms and procedures. If you wish to request a refund, you should direct such a request directly to Apple (e.g. at reportaproblem.apple.com) or to Google Play support, as applicable. We do not receive payments and therefore cannot process refunds ourselves.
6.2To the extent NTRLT has any decision-making role in the matter (e.g. where Apple/Google seek our position on a refund request), it is our policy not to refund, in whole or in part, a period already paid for or renewed, regardless of whether or to what extent you have used the Service's content during that period, unless the issue is attributable to a fault on our part that prevented normal use of the Service, or the law provides otherwise.
6.3All new users are offered a 14-day free trial, see Section 3, without any payment information being registered or any commitment being created. You therefore have a genuine, cost-free opportunity to fully explore the Service before any payment obligation arises.
6.4Should you choose to subscribe, whether at the end of the Trial or later, you will, before the purchase is confirmed, be shown a dedicated confirmation screen within the App clearly and prominently stating that (i) delivery of the Service/content begins immediately upon purchase, (ii) you are specifically requesting that delivery begin before the 14-day withdrawal period expires, and (iii) as a result, your right to withdraw from the contract is lost, pursuant to point (m) of Article 18 of the Icelandic Consumer Contracts Act No. 16/2016 (implementing the equivalent exception in Article 16(m) of EU Directive 2011/83/EU on consumer rights, which applies analogously to users elsewhere in the EEA), under which the right of withdrawal does not apply to the supply of digital content not supplied on a tangible medium if performance has begun with the consumer's prior express consent and acknowledgement that they thereby lose their right of withdrawal. In addition to the in-app confirmation, you will also be sent a confirmation email recording this consent, in order to meet the requirement under Article 15 of the same Act that a request for performance to begin during the withdrawal period be recorded on a durable medium. By confirming this understanding and proceeding with the Apple/Google purchase flow, you provide your informed consent to the foregoing. This does not affect your statutory right to cancel your subscription for the future, see Section 5.
6.5Should you choose to dispute a charge directly with your card issuer or financial institution (a chargeback) instead of following Apple's/Google's procedure under 6.1, without such action being justified under these Terms, we reserve the right to suspend or terminate your access to the Service immediately and without further notice.
7.1The Service is our copyright-protected property, cf. the Copyright Act No. 73/1972, and contains copyright-protected property of our licensors or licensees. All trademarks, service marks, trade names, design, and other intellectual property rights embodied in the Service or content made available through it are the property of us, our licensors, licensees, or affiliated companies.
7.2Unless we specifically agree in writing, you may not use or exploit any part of the Service or its content other than as part of the Service provided to you under these Terms. We do not transfer any ownership or title in any part of the Service or its content to you.
8.1We hereby grant you a limited, revocable, non-exclusive, non-transferable licence to access and use the App and the Service's content for your own personal use, not for commercial purposes.
8.2You confirm and agree that you will not copy, reproduce, modify, create derivative works from, publish, distribute, sell, rent, lend, assign, or otherwise exploit any content and/or the Service, in whole or in part, to any third party, without our express prior written permission, unless specifically permitted under mandatory law.
8.3Each subscription is intended for use by a single user. Sharing login credentials or access between individuals is prohibited and may result in account termination without refund.
9.1You are responsible for maintaining and protecting your account access information, both with us and with Apple/Google, and for preventing unauthorised access to it.
9.2You have no right to assign your rights and obligations under these Terms without our written permission.
10.1We reserve the right to change, add to, or remove content, features, or subscription plans of the Service at any time. We are not liable for any damage you may suffer as a result of such changes, beyond what follows from mandatory law.
10.2We reserve the right to amend these Terms. Where material changes affecting your rights are made, such as price changes or an increase in the limitation of liability, we will notify you via a notice in the App and provide at least 14 days' notice before the change takes effect, and inform you of your right to cancel your subscription before the change takes effect if you do not accept it, see Section 5. Immaterial changes may be notified with shorter or no notice. Your continued use of the Service after a change takes effect constitutes acceptance of it.
Nutreleat is not a medical device and does not provide medical advice. The nutritional information, calculations, recommendations, and other content in the App are for general informational and personal tracking purposes only.
11.1The App is not a substitute for professional medical advice, diagnosis, or treatment. Always consult a qualified physician, registered dietitian, or other qualified healthcare professional before making significant changes to your diet, exercise routine, or nutrition plan.
11.2The nutritional information in the App's food database is sourced from third-party databases and user contributions. We do not warrant that this information is complete, accurate, or current at all times.
11.3Energy expenditure estimates and nutritional recommendations generated by the App are based on general scientific models and population-level averages, not individualised assessment. Individual results will vary.
11.4The App is not intended to diagnose, treat, cure, or prevent any disease or medical condition.
11.5If you have a medical condition, are pregnant, or are breastfeeding, consult a qualified healthcare professional before using the App to guide your nutrition.
11.6If you are currently receiving treatment for an eating disorder — including but not limited to anorexia nervosa, bulimia nervosa, binge eating disorder, or orthorexia — you must consult your treating healthcare provider or registered dietitian before using this App. Calorie tracking and nutritional monitoring tools can be contraindicated during certain stages of eating disorder recovery. We strongly advise against using the App without professional guidance in this context.
11.7We expressly disclaim any liability for any health outcomes, injury, or harm arising from reliance on information provided by the App. Use of the App is at your own risk.
12.1The Service is provided “as is” and “as available”, and we do not warrant that it will be uninterrupted, error-free, or meet any particular expectations of the user.
12.2To the maximum extent permitted by law, we are not liable for any indirect, incidental, or consequential damages, loss of business, or other consequential loss arising from your use of, or inability to use, the Service. Nothing in these Terms limits or excludes any liability of ours that cannot be limited or excluded under mandatory law, including consumer protection law.
13.1These Terms are governed by and shall be construed in accordance with the laws of Iceland.
13.2In the event of a dispute, the parties shall first seek to resolve it by agreement. Any dispute that cannot be resolved by agreement may also be referred to the Board of Appeals for Consumer Purchases of Goods and Services (Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa), which operates pursuant to the Act on Consumer Dispute Resolution Bodies No. 81/2019 and deals with disputes between consumers and sellers arising from the purchase of goods or services. Otherwise, the dispute shall be resolved before the District Court of Reykjavík (Héraðsdómur Reykjavíkur).
14.1We reserve the right to assign our rights and obligations under these Terms, in whole or in part, e.g. in connection with a sale, merger, or restructuring of the company, provided such assignment does not reduce your rights under these Terms.
14.2Should we decide to discontinue the App or a particular subscription plan, we will notify active subscribers with reasonable notice, to the extent feasible. Subscribers retain access for the remainder of any period already paid for, but no further charge will be made once the Service is discontinued.
15.1Neither party is liable for any failure or delay in performance of these Terms caused by circumstances beyond its reasonable control and which were not foreseeable at the time these Terms were entered into, including but not limited to: outages or service disruptions at Apple, Google, hosting or network providers, or other third parties the Service relies on; natural disasters; pandemics or epidemics; strikes or labour disputes; war or armed conflict; general transport disruptions; energy shortages; and government action or intervention, including trade restrictions.
15.2Where such circumstances prevent a party from performing its obligations under these Terms, that party shall not be liable for so long as the circumstance persists, and neither party shall be entitled to damages as a result.
16.1If any provision of these Terms is held invalid or unenforceable under applicable law, this shall not affect the validity of the remaining provisions, and the invalid or unenforceable provision shall be modified to the minimum extent necessary to give effect to its original intent within the limits of the law.
16.2These Terms, together with our Privacy Policy and any additional terms referenced herein, constitute the entire agreement between you and us regarding their subject matter and supersede all prior or contemporaneous agreements, representations, or understandings on the same subject.
16.3Our failure to enforce any provision of these Terms on any occasion shall not be deemed a waiver of our right to enforce it later.
17.1Notices from us to you regarding these Terms, including changes to them or to the Service, are validly given via a notice within the App, by email to your address registered with us or with Apple/Google, or, where applicable, by publication on our website.
17.2Inquiries, feedback, and other communications from you to us, other than refund requests under Section 6, should be directed to legal@ntrlt.is.
18.1These Terms are made in both English and Icelandic, see the Icelandic version available at ntrlt.is/eula. The two versions are materially identical. However, in the event of any inconsistency between the versions, of whatever nature, the Icelandic version shall prevail and govern the interpretation of these Terms.
If you have any questions about these Terms or wish to contact us regarding your rights, please reach out:
These Terms should be read alongside our Privacy Policy, which describes how we collect and handle your personal data.